Gátan

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 549 4.090 kr.
spinner

Gátan

4.090 kr.

GATAN
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2022 549 4.090 kr.
spinner

Um bókina

Gátan er hörkuspennandi saga eftir glæpasagnadrottninguna Camillu Läckberg og sjáandann Henrik Fexeus. Hún er hluti af hinum geysivinsæla þríleik um tvíeykið sérstaka, leynilögreglukonuna Mínu og sjáandann Vincent. Þegar lítill drengur hverfur frá leikskóla á Södermalm í Stokkhólmi kemur aftur til kasta Mínu Dabiri og félaga hennar í lögreglunni. Þau finna fljótt líkindi við annað barnsrán, sem endaði með skelfingu, og átta sig á því að þau eiga í höggi við harðsvíraða glæpamenn. Allt bendir til þess að fleiri börn muni hverfa. Í fyrsta sinn eftir hina örlagaríku atburði tveimur árum fyrr hefur Mína samband við sjáandann Vincent Walder. Samband þeirra er jafnsérstakt og áður og í ljós kemur að hann hefur líka sitthvað til málanna að leggja við rannsókn þessa máls sem snýst um brotin fjölskyldubönd, miskunnarlaus morð og skugga fortíðar. En þetta er kapphlaup við tímann. Hver getur komið til bjargar þegar þau sem minnst mega sín eru í lífshættu?

Camilla Läckberg er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu og hafa bækur hennar selst í rúmlega 29 milljónum eintaka í tæplega 60 löndum um allan heim. Henrik Fexeus er margverðlaunaður sjáandi og einn fremsti sérfræðingur heims á sviði líkamstjáningar. Bækur hans hafa selst í 1,5 milljónum eintaka í 35 löndum um allan heim. Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Gátan”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

gauksunginn
4.290 kr.
kassinn
4.290 kr.
Ofur Kalli og bakteríuskrímslin
3.290 kr.
Silfurvængir
3.290 kr.
Ofur-Kalli og dularfulla ömmuhvarfið
3.490 kr.
Gullbúrið
3.490 kr.
Ljónatemjarinn: Fjällbacka-serían #9
2.790 kr.
Englasmiðurinn: Fjällbacka-serían #8
2.390 kr.2.590 kr.
Vitavörðurinn: Fjällbacka-serían #7
2.590 kr.
Hafmeyjan: Fjällbacka-serían #6
2.590 kr.
Ástandsbarnið: Fjällbacka-serían #5
2.590 kr.

INNskráning

Nýskráning