Gönguleiðapakki: hálendið og Reykjanes

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 400 7.190 kr.
spinner

Gönguleiðapakki: hálendið og Reykjanes

7.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 400 7.190 kr.
spinner

Um bókina

Frábærar bækur fyrir alla sem hafa áhuga á útivist. Nú saman í pakka bæði Gönguleiðir á hálendinu og Gönguleiðir á Reykjanesi.

Gönguleiðir á hálendinu hefur að geyma lifandi leiðarlýsingar tæplega 30 leiða á hálendinu, nánar tiltekið að Fjallabaki og í kringum Landmannalaugar. Hverri leið fylgir leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, fjöldi ljósmynda og upplýsingar um staðhætti og aðstæður. Þar að auki má finna sögulegan og landfræðilegan fróðleik um þær leiðir sem gengið er hverju sinni. Í bókinni er einnig hagnýtur kafli um undirbúning og fjölda góðra ráða þegar kemur að fjallgöngum og útivist.

Bók þessari er ætlað að auðvelda fólki að uppgötva dásemdir náttúru landsins á hálendinu. Staðir eins og Hvanngil, Álftavatn, Suðurnámur, Vondugil, Einhyrningur, Stóragil í Skælingum og Fossabrekkur kalla á hvern þann sem unnir náttúrunni. Og þeir kalla aftur og aftur.

Gönguleiðir á Reykjanesi hefur að geyma lifandi leiðarlýsingar tæplega 30 áfangastaða á Reykjanesskaga, fjársjóðskistu útivistarfólks. Sumar leiðirnar eru á fjöll, aðrar um hraun og dali og margar eru hringleiðir. Allar eru lýsingarnar innblásnar af þeim miklu jarðumbrotum sem hafa einkennt svæðið alla tíð. Margar leiðirnar henta fyrir fjallahjól, aðrar fyrir utanvegahlaup og enn aðrar til að kynna yngstu kynslóðina fyrir töfrum fjallaferða og eru þær merktar sérstaklega.

Þessi bók hentar öllum þeim sem ætla að leggja land undir fót. Hverri leið fylgir leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, fjöldi ljósmynda og upplýsingar um staðhætti og aðstæður. Auk þess er settur fram sögulegur og landfræðilegur fróðleikur um þær leiðir sem gengnar eru hverju sinni. Í bókinni er einnig hagnýtur kafli um undirbúning og fjölda góðra ráða sem varða fjallgöngur og útivist.

Jónas Guðmundsson höfundur bókanna er leiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur sem varið hefur ótal stundum á fjöllum. Reykjanes skipar sérstakan sess í huga hans og þangað leitar hann aftur og aftur til að njóta, upplifa og endurhlaða rafhlöður líkamans og sálartetursins.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Gönguleiðapakki: hálendið og Reykjanes”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning