Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Hjá brúnni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 303 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 303 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
María er ballerína sem býr í ónefndri borg. Á kvöldin stígur hún á svið og dansar fyrir listþyrsta áhorfendur í einu af leikhúsum bæjarins en á daginn sinnir hún hversdagslegri verkefnum; þrífur hótelherbergi oggætir barnshafandi prinsessu sem lokuð er inni í lítilli íbúð eftir að barnsfaðir hennar, sem er skáld og bróðir leikhússtjórafrúarinnar, hefur yfirgefið hana í sárum raunum. Við sögu kemur fjöldi persóna úr nútíð og fortíð borgarinnar; listamenn, almúgi og valdsmenn. Í fyrstu virðist allt í föstum skorðum en það er einskær blekking; undir stilltu yfirborði kraumar og vellur og fyrr en varir sýður uppúr með ófyrirséðum afleiðingum.