Káinn: Fæddur til að fækka tárum – Ævi og ljóð

Útgefandi: Völuspá
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 7.190 kr.
spinner

Káinn: Fæddur til að fækka tárum – Ævi og ljóð

Útgefandi : Völuspá

7.190 kr.

Káinn: Fæddur til að fækka tárum - Ævi og ljóð
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 7.190 kr.
spinner

Um bókina

Káinn fæddist 1859, ólst upp á Akureyri og í Eyjafirði en fluttist 19 ára gamall til Vesturheims þar sem hann bjó í Winnipegborg í Manitóba og síðar sunnan línu, í Norður-Dakóta. Káinn var gæddur náðargáfu sem hann beitti óspart þegar mikið stóð til hjá löndum hans eða þeim lenti saman með gífuryrðum greip hann til sérgáfu sinnar:

En kjaftinn get ég móðan látið mása
á meðan kuldastormar lífsins blása.

Hér segir Jón Hjaltason sagnfræðingur sögu þessa fyrsta og eina kímniskálds Íslendinga sem ódrukkinn var þurr á manninn en hreifur allra manna glaðværastur:

Að sjá mig aðeins ófullan
enginn maður sér mig.

Saga Káins er um leið saga Vestur-Íslendinga sögð af glettnislegum sjónarhóli skáldsins sem orti:

En undarlegast atvik samt ég tel
að Íslendingur skyldi frjósa í hel.

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning