Ljósfaðir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 314 7.890 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2026 314 7.890 kr.
✓
spinner

Um bókina

Jónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi og yfirsetumaður, sem hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra. Viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi ber að garði. Áhrifamikil, söguleg skáldsaga.

„Jónas Jónsson. Hann eignaðist 33 börn með þremur konum. En hann var líka ljósfaðir sem hjálpaði mörg hundruð börnum í heiminn. Langalangalangafi minn.“

Í skugga trjánna, Guðrún Eva Mínervudóttir (2024)

Rúmföstum gömlum manni er Jónasi í mun að miðla þekkingu sinni til þriðju eiginkonunnar, Lilju. Hún sinnir lækningunum með honum og annast að mestu hinn misleita hóp sjúklinga, auk þess að stýra búinu. En viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi, Jónas yngri, tvídklæddur og „myndarlegri en djöfullinn sjálfur“ kemur til dvalar í Hróarsdal – og erfiðar spurningar um tilvist, sekt og ábyrgð verða ekki lengur umflúnar.

Guðrún Eva Mínervudóttir hefur hér skrifað áhrifamikla skáldsögu sem er „fleytifull af sannleika, hundrað ára gömlum hviksögum, munnmælum, staðreyndum og söguburði“ eins og hún orðar það í eftirmála. Guðrún Eva er í fremstu röð íslenskra rithöfunda, síðasta bók hennar, Í skugga trjánna, var hlaðin lofi og varð ein mest selda bók ársins 2024.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Ljósfaðir”

Tengdar bækur

4.090 kr. – 4.290 kr.
3.490 kr. – 3.690 kr.
Aðferðir til að lifa af
990 kr. – 3.690 kr.
Ástin, Texas
1.490 kr. – 3.490 kr.
Skegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu
1.490 kr. – 3.190 kr.
Englaryk
990 kr. – 3.390 kr.
Allt með kossi vekur
990 kr. – 3.100 kr.
1.190 kr. – 2.065 kr.
2.690 kr.
7.390 kr.
4.090 kr.
6.790 kr.
Klippa-heima
1.790 kr.
990 kr. – 6.210 kr.
3.490 kr.

INNskráning

Nýskráning