Skaparinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 280 2.065 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2009 280 1.190 kr.
spinner

Skaparinn

1.190 kr.2.065 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2008 280 2.065 kr.
spinner
Mjúk spjöld 2009 280 1.190 kr.
spinner

Um bókina

Guðrún Eva Mínervudóttir hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra höfunda. Sögur hennar eru sprottnar upp úr íslenskum samtíma og lýsa honum af innsæi. Skaparinn heitir ný skáldsaga hennar og sem fyrr lýsir Guðrún Eva átökum venjulegs fólks við sérkennilegar aðstæður þar sem hjálpin berst stundum úr óvæntri átt. Textinn er magnþrunginn og fangar á einstakan hátt tilfinningar manneskjunnar á ögurstundu.

Sveinn hefur helgað sig þeirri list að smíða fagrar og vandaðar kynlífsdúkkur. Hann býr einn og hefur lítil samskipti við umheiminn. Eftir mikla  vinnutörn lítur hann út um gluggann og sér Lóu þar sem hún bisar við að skipta um dekk. Sveinn finnur sig knúinn til að aðstoða hana og býður henni inn til sín. Í kjölfarið dregst hann með ófyrirsjáanlegum afleiðingum inn í fjölskyldumál Lóu og tekst um leið á við eigið líf.

Skaparinn var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2008.

INNskráning

Nýskráning