Loftleiðir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 336 13.590 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 336 13.590 kr.
✓
spinner

Um bókina

Ljósmyndabók á íslensku og ensku um Loftleiðir. Í bókinni er ævintýralegum ferli Loftleiða gerð skil, frá því þrír ungir menn stofnuðu fyrirtæki með eina litla flugvél og þar til félagið fór fimm ferðir á dag á risaþotum milli Lúxemborgar og New York, með viðkomu á Íslandi. Loftleiðaandinn sprettur ljóslifandi upp af blaðsíðum bókarinnar.

Bókin er gefin út í tilefni af 80 ára afmæli Loftleiða. Margar myndanna í bókinni hafa aldrei birst áður. Saga Loftleiða er sögð í ljósmyndum og myndatextum, bæði á íslensku og ensku. Loftleiðir var mesta viðskiptaævintýri á Íslandi á 20. öld. Loftleiðir gerðu Ísland að flugþjóð. Myndirnar í bókinni eru eftir fjölmarga ljósmyndara, bæði áhugamenn og fagmenn. Flestar myndanna í bókinni eru þó eftir sænska ljósmyndarann Lennart Carlén. Hann hóf að taka myndir fyrir Loftleiðir 1956. Enn fremur eru ljósmyndir eftir Stefán Nikulásson, Halldór Sigurjónsson og Jón Svavarsson í bókinni. Bókina prýðir líka tímatöflur, auglýsingar og flugmiðar. Það er eitthvað ómótstæðilega heillandi við flugið á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina. Loftleiðiabókin fangar þetta skemmtilega tímabil.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Loftleiðir”

Tengdar bækur

Edgar Allan Poe_Innbundin
5.390 kr. – 7.090 kr.
Klippa-heima
1.790 kr.
2.990 kr.
2.990 kr. – 4.590 kr.
2.990 kr. – 4.290 kr.
1.690 kr.
2.990 kr. – 4.290 kr.
1.490 kr. – 2.690 kr.
3.190 kr.
2.990 kr.
3.890 kr.

INNskráning

Nýskráning