Morð og messufall
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 304 | 4.290 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2025 | 304 | 4.290 kr. | ||
| Rafbók | 2025 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Sif hefur einföld markmið í lífinu. Hún vill bara halda foreldrum sínum á – eða að minnsta kosti nálægt – mottunni og hreppa prestsembætti svo hún geti tryggt syni sínum örugga framtíð. Fyrsta atvinnuviðtalið eftir útskriftina úr guðfræðinni endar þó með ósköpum þegar þau séra Reynir ganga fram á lík í altariströppunum. Í óðagotinu sem fylgir er Sif ráðin í tímabundið starf kirkjuvarðar og einsetur sér að sanna sig svo hún hljóti prestsvígslu í kjölfarið. En organistinn er hættur, bókhaldið í óreiðu og í ofan á lag virðist piltur úr ungmennastarfinu vera horfinn sporlaust. Hvað í ósköpunum var hinn látni, Kormákur Austfjörð, sérlegur aðstoðarmaður Reynis, að bralla á elliheimili hverfisins? Og hversu mörg boðorð er eiginlega hægt að brjóta í einni og sömu kirkjunni?
Morð og messufall er sprenghlægileg glæpasaga, full af eftirminnilegum persónum og óviðjafnanlegum uppákomum. Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hafa getið sér gott orð sem barnabókahöfundar og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín innanlands og utan en þetta er fyrsta bók þeirra fyrir fullorðna.























4 umsagnir um Morð og messufall
Fanney Benjaminsdottir –
„Frábær! Alger kósíkrimmi með skemmtilegum persónum sem ég vona að ég hitti aftur seinna.”
Embla Bachmann / Vikan
Fanney Benjaminsdottir –
„Sprenghlægileg glæpasaga.”
Ævar Þór Benediktsson / Vikan
Fanney Benjaminsdottir –
„Morð og messufall er fyndin, litrík og skemmtilega farsakennd glæpasaga … lesandinn fær að njóta þess að fylgja ráðgátu sem er í forgrunni frá upphafi til enda, en um leið hlæja yfir því hversdagslega og stundum bráðfyndna mannlega atferli sem fléttast inn í söguna.”
Jana Hjörvar / Lestrarklefinn
Hekla McKenzie –
„Hér eru yndislegar persónur, bráðfyndnir orðaleikir og dásamleg kímni en jafnframt spenna og áhugaverð og flókin flétta þar sem margt kemur á óvart í lokin.”
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna