Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Geisladiskur | 2025 | 3.590 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Geisladiskur | 2025 | 3.590 kr. |
Um bókina
Ó eilífi fossinn sem rambar á fossvegum guðs er tónverk eftir Kolbein Bjarnason samið við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur. Flytjendur eru söngkonurnar Herdís Anna Jónasdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir og tónlistarhópurinn CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar.
Hér eru tekin fyrir tíu ljóð úr jafn mörgum ljóðabókum Steinunnar. Fyrsta bókin Sífellur, kom út árið 1969 þegar skáldið var 19 ára gamalt og sú tíunda, Dimmumót, kom út 50 árum síðar, árið 2019. Ljóðin öll eru prentuð í lítilli bók sem fylgir diskinum. Þar er einnig grein eftir Kolbein um ljóð Steinunnar, m.a. um ljóðin sem „hefðu átt“ að vera með í þessu verki en voru ekki valin.
Tíminn, náttúran, ástin, treginn, ferðalagið og ferðalokin sjálf. Þetta eru helstu þemun í ljóðabókum Steinunnar. Eftir því sem árin líða fær náttúran og sérstaklega þær ógnir sem að henni steðja meira rými í skáldskap hennar. Lengsta ljóð verksins er Einu-sinni-var-landið, þar sem fjallað er um ferðir írsks einsetumanns um nafnlausa eyju í norðurhöfum „áður en Ingólfur kom og hans fólk.“ Titill tónverksins er sóttur í þessa mögnuðu ljóðafrásögn.
Í tónlistinni er áheyrandanum fleygt öfganna á milli frá innhverfum hugleiðingum til ofsafenginna yfirlýsinga. Hljóðfærasamsetning verksins er einstök. Hér eru tvær hörpur, semball, harmóníka og umtalsverður fjöldi slagverkshljóðfæra í höndum tveggja slagverksleikara. Hljóðfærin voru valin með það í huga að geta skapað, ásamt tveimur háum röddum, óendanleg litbrigði, nýstárlegan og framandi hljóðheim. Tónmeistarinn Ragnheiður Jónsdóttir fangar þetta allt í vandaðri upptöku.
Kolbeinn Bjarnason starfaði lengi sem flautuleikari, kom fram víða um heim, vann náið með fjölda tónskálda, frumflutti verk þeirra og hljóðritaði fyrir alþjóðleg útgáfufyrirtæki. Hann lagði flautuna á hilluna árið 2017 og hefur á síðustu árum samið verk fyrir alls kyns samsetningar hljóðfæra og radda.
























Umsagnir
Engar umsagnir komnar