Segulbönd Iðunnar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 11.990 kr.
spinner

Segulbönd Iðunnar

11.990 kr.

Segulbönd Iðunnar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2018 11.990 kr.
spinner

Um bókina

Í Segulböndum Iðunnar má finna 160 kvæðalög úr safni Kvæðamannafélagsins Iðunnar, á bók og fjórum geisladiskum. Segja má að útgáfan sé framhald af Silfurplötum Iðunnar sem gefnar voru út í tilefni af 75 ára afmæli félagsins árið 2004. Þar voru gefin út 200 kvæðalög úr hljóðritasafni félagsins sem teknar voru upp á lakkplötur á árunum 1935 og 1936.

Hér birtast nú rímnalög sem eiga það sameiginlegt að hafa verið hljóðrituð á segulbönd eftir að sú tækni kom til sögunnar hér á landi, eða á árunum í kringum 1960. Með hverju lagi eru prentaðar nótur og vísur og hefur Steindór Andersen leitað uppi vísur og kvæði og höfunda þeirra. Ragnar Ingi Aðalsteinsson hefur tekið saman yfirlit yfir bragarhætti rímna og skrár yfir bragarhætti eru prentaðar aftan við stemmurnar til þess að auðvelda fólki að finna stemmur við ákveðna bragarhætti.

Í bókinni eru einnig greinar sem tengjast efninu, eftir Njál Sigurðsson um sögu Iðunnar á segulbandatímanum, eftir Guðmund Stein Gunnarsson um það að skrifa nótur við kvæðalög og þá lýsir Guðríður B. Helgadóttir reynslu sinni af því að alast upp í lifandi kveðskaparhefð. Hún fjallar einnig um það hvernig kvæðalögin færast á milli kynslóða og hvernig hver kvæðamaður eða -kona gerir þau að sínum.

Kvæðamannafélagið Iðunn og Stofnun Árna Magnússonar standa fyrir þessari veglegu útgáfu og er Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur ritstjóri.

Tengdar bækur

2.690 kr.5.490 kr.
2.190 kr.
stjáni 10
3.290 kr.
3.890 kr.
saga_af_svartri_geit
3.890 kr.
3.190 kr.
4.090 kr.
Nýja stjórnarskráin: Hvernig varð hún til? Hvar er hún stödd?
990 kr.1.290 kr.
Opna svæðið
5.090 kr.
Byggðasaga Skagafjarðar IX. bindi
6.890 kr.
Nótabátur leggst í víking
2.590 kr.
Undir kelduna
2.490 kr.
Auðhumla
5.990 kr.
Er það hafið eða fjöllin
1.590 kr.
Svefneyingabók
7.490 kr.
2.690 kr.

INNskráning

Nýskráning