Snjóblinda
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 286 | 2.205 kr. | ||
Kilja | 2016 | 289 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2011 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 286 | 2.205 kr. | ||
Kilja | 2016 | 289 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2011 | 1.490 kr. |
Um bókina
Á Siglufirði finnst ung kona blóðug og hálfnakin í snjónum nær dauða en lífi. Aldraður rithöfundur deyr á grunsamlegan hátt á æfingu hjá áhugaleikfélagi bæjarins, daginn fyrir frumsýningu.
Ari Þór Arason, nýútskrifaður lögreglumaður, reynir að komast að því hvað er satt og hvað er logið í samfélaginu þar sem engum virðist hægt að treysta. Einangrunin, myrkrið og snjórinn þrengja að honum, óttinn nær tökum á bæjarbúum og gleymdir glæpir fortíðar koma upp á yfirborðið.
Ragnar Jónasson vakti verðskuldaða athygli fyrir spennusögu sína Fölsk nóta. Hér sýnir hann og sannar að hann kann að setja saman sögu sem heldur lesandanum í spennu og óvissu fram á síðustu blaðsíðu. Snjóblinda hefur vekið mikla athygli erlendis og verið þýdd á fjölmörg tungumál.