Strá fyrir straumi – Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809-1871

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 442 4.590 kr.
Rafbók 2024 - 4.090 kr.
spinner

Strá fyrir straumi – Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809-1871

4.090 kr.4.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 442 4.590 kr.
Rafbók 2024 - 4.090 kr.
spinner

Um bókina

Um karlmenn 19. aldar hafa verið skrifaðar fjöldi ævisagna en konur þessa tíma hafa lent meira baksviðs, enda heimildir um þær oft færri, minna rannsakaðar eða ekki taldar merkilegar. Hér er komið tímamótaverk, ein af stórum kvenævisögum 19. aldar.Sigríður Pálsdóttir fæddist árið 1809 á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu á Fljótsdalshéraði en dó árið 1871 á Breiðabólstað í Fljótshlíð eftir viðburðaríka ævi.

Svo vill til að um Sigríði eru óvenju ríkulegar heimildir, því umfangsmikið bréfasafn tengt henni er varðveitt. Á þeim grunni hefur Erla Hulda Halldórsdóttir skrifað þessa tímamótabók sem varpar nýju ljósi á 19. öldina. Hér er staldrað við aðra hluti en í ævisögum karlanna og lesendur fá sterka tilfinningu fyrir og hlutdeild í hversdagslífi 19. aldar. Hér er fjallað um hið stóra og smáa: Ást, börn og bónorð, líf og dauða, bækur og sjúkdóma, hunda og hordauðar kindur … svo fátt eitt sé nefnt.

Þar sem Sigríður Pálsdóttir umgekkst bæði leika og lærða, hátt setta embættismenn sem bændur, biskupa og niðursetninga, veitir ævisaga hennar óvenju heildstæða mynd af hinni söguríku og mikilvægu 19. öld. Og þar sem sjónarhornið er konu kemur ýmislegt nýtt fram og annað sér lesandi í nýju ljósi.

Erla Hulda Halldórsdóttir er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og hefur rannsakað sögu kvenna í áratugi. Hún hefur skrifað um efnið fjölda greina og bóka, var ein höfunda bókarinnar Konur sem kjósa. Aldarsaga, og sendi síðast frá sér bókina Ég er þinn elskari.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Strá fyrir straumi – Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809-1871”

Tengdar bækur

Konur sem kjósa
Original price was: 3.999 kr..Current price is: 3.890 kr..
Original price was: 3.690 kr..Current price is: 1.999 kr..
4.590 kr.
5.590 kr.
Original price was: 6.490 kr..Current price is: 1.990 kr..
12.390 kr.
4.390 kr.
2.790 kr.
Original price was: 2.790 kr..Current price is: 1.799 kr..

INNskráning

Nýskráning