Tókýó-Montana hraðlestin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2024 304 4.090 kr.
spinner

Tókýó-Montana hraðlestin

4.090 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2024 304 4.090 kr.
spinner

Um bókina

Skáldsagan Tókýó-Montana hraðlestin er safn hundrað og þrjátíu örsagna sem tengjast persónulegri reynslu höfundar þegar hann dvaldi í Japan og Montana-ríki í Bandaríkjunum. Hnyttni Brautigans og hið ljóðræna ímyndunarafl hans njóta sín til fulls í þessari ómótstæðilegu bók. Brautigan sagði um form þessarar óvenjulegu skáldsögu að hver saga táknaði aðskilda stöð á upphugsuðu járnbrautarspori hraðlestarinnar milli Japans og Montana og að „ég“ væri rödd þessara stöðva.

Þórður Sævar Jónsson íslenskaði.

Bandaríski rithöfundurinn Richard Brautigan (1935–1984) ólst upp við sára fátækt í Oregon-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna. Um tvítugt fluttist hann til San Francisco þar sem hann bjó lengst af ævinni. Þar hóf hann höfundarferil sinn með ljóðagerð. Bækur hans fengu litla athygli þar til Silungsveiði í Ameríku kom út árið 1967. Sú bók sló rækilega í gegn og hefur selst í yfir 4 milljónum eintaka. Tókýó-Montana hraðlestin er ellefta bókin eftir Brautigan sem kemur út í íslenskri þýðingu.
Þórður Sævar Jónsson (f. 1989) hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur – Vellankötlu (tilnefnd til Maístjörnunnar), Blágil, Brunagadd og Heimkynni – og eitt smáprósasafn, 49 kílómetrar er uppáhalds vegalengdin mín. Hann hefur áður þýtt fimm skáldverk eftir Richard Brautigan auk sögu eftir Lúkíanos frá Samósata úr forngrísku. Þá var Þórður einn af yfirritstjórum meðgönguljóðaseríunnar á árunum 2016–2018.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Tókýó-Montana hraðlestin”

Tengdar bækur

babylon
3.690 kr.
Willard og keilubikararnir hans
2.090 kr.3.490 kr.
Hefnd grasflatarinnar
3.990 kr.
Hawkline-skrímslið: gotneskur vestri
3.290 kr.
Vatnsmelónusykur
2.590 kr.
1.390 kr.
4.890 kr.
2.990 kr.4.690 kr.
5.490 kr.
4.090 kr.
8.890 kr.
2.290 kr.
4.090 kr.
2.990 kr.5.690 kr.

INNskráning

Nýskráning