Varkár

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 174 6.290 kr.
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 174 6.290 kr.

Um bókina

Tilhugsunin um að það verði ekkert bergmál. Að líf mitt verði eins og að klappa einu sinni saman lófum í hljóðeinangruðu herbergi.

Varkár er persónulegt verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum.

Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.

Margrét Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1981. Hún vinnur innan ólíkra forma og miðla, einkum á sviði dans, myndlistar og skrifa. Hún er menntuð sem danshöfundur frá ArtEZ listaháskólanum í Hollandi og hefur lokið meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Verk hennar hafa verið sýnd á hátíðum, söfnum og í leikhúsum víða um heim. Margrét hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998 2002). Varkár er hennar fyrsta skáldverk.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Varkár”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning