Afætur: Deild Q #7
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 484 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 484 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2017 | 490 kr. |
Um bókina
Yfirstjórn dönsku lögreglunnar vill leggja Deild Q niður, finnst hún hafa náð litlum árangri við að leysa gömul sakamál. Carl Mørck og félagar berjast gegn þeirri ákvörðun og reyna um leið að komast til botns í nýjum málum sem eiga rætur í fortíðinni.
Roskin kona finnst myrt í Kaupmannahöfn og glæpurinn minnir á gamalt óupplýst morðmál. Ökuníðingur eltir ungar konur og ekur þær niður. Hvaða leyndu þræðir liggja á milli þessara mála – og hvernig tengjast þau nokkrum ungum, sjálfhverfum konum sem lifa á bótum og leita stöðugt nýrra leiða til að ná meiri peningum út úr kerfinu?
Jussi Adler-Olsen er óumdeildur konungur danskra glæpasagna og hefur eignast fjölda aðdáenda á Íslandi og víða um heim. Afætur er sjöunda bókin um Carl Mørck og Deild Q.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 30 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.
6 umsagnir um Afætur: Deild Q #7
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★ ★
„[Jussi Adler-Olsen] skrifar af fítonskrafti og enginn stendur honum á sporði í þeirri list að flétta alla söguþræðina saman.“
Dagbladenes Bureau
Árni Þór –
★ ★ ★ ★
„Hér er allt á fullri ferð . . . betri en nokkru sinni fyrr.“
Berlingske
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★
„Afætur er fyrst og fremst spennusaga en einnig satíra; ég hef sjaldan eða aldrei lesið glæpasögu sem hefur kætt mig jafn mikið.“
Krimifan
Árni Þór –
★ ★ ★ ★ ★
„Jussi Adler-Olsen spilar sem fyrr af listfengi á marga strengi . . . norrænn krimmi af bestu gerð.“
Jyllands-Posten
Árni Þór –
„Mjög sterk og vel skrifuð skáldsaga sem heldur lesendum sannarlega við efnið í sagnaröðinni um Deild Q.“
Björgvin G. Sigurðsson / Pressan
Árni Þór –
„Jussi kann sitt fag og hann bregst ekki með spennusögunni Afætum … enn ein rós í hnappagat höfundar.
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið