Allt fínt … en þú?
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2010 | 279 | 2.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2010 | 279 | 2.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Nína veit ekki hvernig hún á að taka því þegar sjötugur faðir hennar er kominn með kærustu, örfáum vikum eftir lát eiginkonu sinnar. En stjörnuleikkonan Sunna, systir Nínu, velkist ekki í vafa: Hún vill slíta öllu sambandi við föður sinn. Strax!
Eins og sönnum máttarstólpa fjölskyldunnar og sómakærri prestfrú sæmir reynir Nína að miðla málum. Þó hefur hún meira en nóg á sinni könnu – fjárhagurinn er í molum, dæturnar tvær valda henni áhyggjum og eiginmaðurinn þráast við að lesa hugsanir hennar.
Ástandið í fjölskyldunni verður sífellt skrautlegra og loks er suðumarki náð.
Skáldsagan Allt fínt … en þú? segir frá nokkrum mánuðum í lífi tæplega fertugrar konu í Reykjavík. Konu sem kann ekki að segja nei og vill svo gjarnan vera góð við alla … og hættir þess vegna til að vanrækja sjálfa sig. Bráðfyndin saga um grafalvarleg málefni sem geta komið upp í hvaða fjölskyldu sem er.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 18 mínútur að lengd. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir les.
4 umsagnir um Allt fínt … en þú?
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„[Jónína] hefur mjög hlýjan og persónulegan tón og góð tök á konunni sem er að rekja þessa sögu, ágætlega írónískan … Stór þorri kvenlesenda sem eru að leita að samtímasögum úr íslensku samfélagi verður ánægður með þessa bók og skemmtir sér vel yfir henni. Skemmtileg lesning.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… sprúðlandi kímnigáfa.“
Egill Helgason / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Bókin er fyndin og vel skrifuð um konu sem á alveg nóg með sig en lætur aðra hafa forgang.”
LK / Fréttatíminn
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Bráðskemmtileg saga … skoppandi kímnigáfa. Þarna hefur Jónína fundið sig og hún mun eignast þakklátan lesendahóp.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan