Eyjan helga
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 420 | 4.390 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 420 | 4.390 kr. |
Um bókina
Þegar lögregluforinginn Ryan er neyddur til að taka sér leyfi frá störfum finnur hann sér griðastað á eyjunni Holy Island í Norðymbralandi á Englandi. Stuttu síðar er friðurinn rofinn þegar ung kona finnst látin í hinum fornu klausturrústum á eyjunni.
Ryan tekur til við rannsókn málsins ásamt sagnfræðingnum Önnu Taylor sem er ráðgjafi lögreglunnar. En þeim gengur erfiðlega að hafa uppi á morðingjanum sem er kannski enn á eyjunni. Auk þess flækja aðstæður á eyjunni málið, heiðnar helgiathafnir og pólitík í litlu samfélagi.
Frábær glæpasaga, blönduð kímni og örlítilli rómantík, sem sló í gegn þegar hún kom fyrst út sem rafbók á amazon.com og varð að metsölubók á heimsvísu.
Ragnar Hauksson íslenskaði.
Enski rithöfundurinn LJ Ross er lögfræðingur að mennt en eftir velgengni bóka hennar hefur hún snúið sér einvörðungu að ritstörfum.












Umsagnir
Engar umsagnir komnar