Fjallaverksmiðja Íslands
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 278 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 278 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
„Himnarnir hrynja þegar hann áttar sig á því að Emma liggur í bátnum. Hún liggur þarna eins og vatnadís með krosslagðar hendur á brjósti og krepptan hnefa um ísexi.“
Sjö nýstúdentar af fjallamennskubraut á Höfn stefna hver í sína áttina áður en vindurinn blæs þeim öllum inn í sama braggann skammt frá Jökulsárlóni. Þar stofna þau Fjallaverksmiðju Íslands – draumasamfélag til dýrðar náttúru, sjálfbærni og nægjusemi. Í bragganum er prjónað og bruggað, ruslað og eldað, elskað og dreymt, og boðskap Fjallaverksmiðjunnar er streymt beint á netið þar sem sífellt fleiri fylgjast með. En daginn sem Emma finnst á lóninu breytist allt.
Bækur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur hafa notið mikilla vinsælda og hlotið margs konar viðurkenningar. Ungmennabókin Vertu ósýnilegur – Flóttasaga Ishmaels hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og Fjöruverðlaunin og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 6 klukkustundur og 35 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á formála hljóðbókarinnar:
4 umsagnir um Fjallaverksmiðja Íslands
embla (staðfestur eigandi) –
„Fjallaverksmiðja Íslands er vel skrifuð og vel uppbyggð bók sem á erindi til allra lesenda.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn
gudnord –
„Ég hafði mjög gaman að henni, mér fannst hún virkilega vel skrifuð.“
Guðrún Baldursdóttir / Kiljan
Arnar –
„Áhugaverð saga sem talar vel inn í samtímann.“
Alexander Gunnar Kristjánsson / Morgunblaðið
Arnar –
„Vel skrifuð og áhugaverð saga um náttúruvernd, hugsjónir og raunveruleika … Þessa bók mætti sennilega flokka sem ungmennabók en hún á hins vegar erindi langt út þá skilgreiningu.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið