Gæði kennslu: námstækifæri fyrir alla nemendur

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2025 303 6.290 kr.

Gæði kennslu: námstækifæri fyrir alla nemendur

6.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2025 303 6.290 kr.

Um bókina

Rétturinn til menntunar er einn af grundvallarþáttum almennra mannréttinda enda er víðast hvar litið á menntun sem leið til heildstæðrar hæfni og farsældar, einstaklinga jafnt sem samfélaga. Til þess að menntun geti orðið slíkt afl þurfa menntakerfi og skólar að geta tekist á við knýjandi viðfangsefni samtímans með gæði kennslu og náms að leiðarljósi og vel menntaða kennara í broddi fylkingar.

Í þessari bók er fjallað um gæði kennslu og námstækifæra nemenda í 15 köflum sem skrifaðir eru af höfundum með víðtæka þekkingu og reynslu. Rúmlega helmingur bókarinnar er byggður á íslenskum niðurstöðum rannsóknar á gæðum kennslu á Norðurlöndununum (Quality in Nordic Teaching – QUINT) sem lauk 2024. Viðfangsefnið er einnig sett í víðara samhengi, svo sem við farsæld sem markmið menntunar, kennslufræði sem styður við menntun fyrir alla og skapandi námsumhverfi.

Bókin er sérstaklega skrifuð með starfandi kennara og skólastjórnendur, kennaranema og kennsluráðgjafa í huga. Höfundar hafa að leiðarljósi að sameina fræðileg og hagnýt sjónarhorn á viðfangsefni sín þannig að efnið nýtist í kennaramenntun og við starfsþróun í skólum.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Gæði kennslu: námstækifæri fyrir alla nemendur”

Tengdar bækur

3.790 kr.
2.690 kr.
2.990 kr.4.490 kr.
5.590 kr.
1.499 kr.2.990 kr.
5.190 kr.
1.090 kr.
skuggi vindsins
990 kr.1.690 kr.
Original price was: 3.290 kr..Current price is: 2.290 kr..
4.590 kr.

INNskráning

Nýskráning