Grimmsævintýri

Útgefandi: Skrudda
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2018 200 2.790 kr.
spinner

Grimmsævintýri

Útgefandi : Skrudda

2.790 kr.

Grimmsævintýri
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2018 200 2.790 kr.
spinner

Um bókina

Jacob og Wilhelm Grimm fæddust í Hanau í Þýskalandi 1785 og 1786, og voru elstir sex systkina. Þeir lærðu báðir lögfræði en fengu fljótt áhuga á þeim vinsælu sögum sem gengið höfðu manna á milli kynslóð eftir kynslóð, þjóðsögum og ævintýrum sem rætur áttu langt aftur í aldir. Þeir söfnuðu miklum fjölda sagna hjá vinum og nágrönnum og skráðu þær til að koma í veg fyrir að þær gleymdust. Safn þeirra, Kinder- und Hausmärchen, sem í voru yfir 200 sögur kom út í tveimur bindum árin 1812 og 1814. Bækurnar gerðu bræðurna heimsfræga.

Fyrsta enska útgáfan kom út árið 1823 og kallaðist German Popular Stories. George Cruikshank sem þá var vel þekktur teiknari myndskreytti bókina. Var þessi bók ein af allra fyrstu barnabókunum sem komu út í Bretlandi. Á Íslandi komu Grimmsævintýri fyrst út árið 1922 í þýðingu Theódórs Árnasonar og þau hafa síðan margsinnis verið endurútgefin í mismunandi útgáfum.

Val Biro fæddist árið 1921 í Búdapest í Ungverjalandi og stundaði nám í myndlist í London þar sem hann settist að. Á löngum ferli hafa myndskreytingar hans birst í u.þ.b. 400 bókum.

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning