Hafið: Síðasta víðerni jarðar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 354 8.090 kr.
✓
spinner

Hafið: Síðasta víðerni jarðar

8.090 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 354 8.090 kr.
✓
spinner

Um bókina

Hvernig er hægt að bjarga hafinu — og þar með plánetunni okkar?
Í þessari bók fjallar Sir David Attenborough, ásamt samstarfsmanni sínum, Colin Butfield, um síðasta víðerni heims – hafið, sem mótar landið sem við búum á, stýrir loftslagi okkar og skapar loftið sem við öndum að okkur.
Með þeirri hlýju, innsýn og lotningu sem einkennt hefur öll tímamótaverk Davids Attenborough sýnir Hafið okkur heim sem er í senn hættulega viðkvæmur og ótrúlega þrautseigur með einstaka getu til að endurnýja sjálfan sig.
„EF VIÐ BJÖRGUM HAFINU, BJÖRGUM VIÐ HEIMINUM OKKAR.
EFTIR ÆVILANGA VINNU VIÐ AÐ MYNDA PLÁNETUNA OKKAR ER ÉG SANNFÆRÐUR UM AÐ EKKERT SÉ MIKILVÆGARA EN ÞAÐ.“
David Attenborough
„Heillandi lesning.“ Evening Standard.
„Ákaflega jákvæð bók,“ The Times
Ragnar Hauksson íslenskaði.

Breski sjónvarpsmaðurinn og rithöfundurinn Sir David Attenborough (1926–) er löngu heimsfrægur fyrir náttúrulífsþætti sína í sjónvarpi og bækur um lífríki jarðar. Má segja að í sjónvarpsþáttum hans bregði Attenborough upp heildstæðri mynd af öllu dýra- og plöntulífi jarðar. Margt af því efni hefur verið sýnt á Íslandi. Bækur hans hafa einnig notið mikilla vinsælda og komið út hér á landi. Síðasta bók hans, Líf á jörðinni okkar, sem hann skrifaði ásamt Jonnie Hughes, varð alþjóðleg metsölubók og kom út hjá Uglu árið 2025.

Colin Butfield er meðstofnandi og framkvæmdastjóri Open Planet Studios. Hann hefur unnið að fjölmörgum heimildarmyndum og stuttmyndum, þar á meðal BBC-þáttaröðinni Earthshot, Netflix-myndunum A Life on Our Planet og Breaking Boundaries, auk heimildarmyndarinnar Ocean fyrir National Geographic, sem unnin var í samstarfi við David Attenborough. Butfield er jafnframt meðhöfundur bókarinnar Earthshot: How to Save Our Planet.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Hafið: Síðasta víðerni jarðar”

Tengdar bækur

Original price was: 7.190 kr..Current price is: 3.999 kr..
Original price was: 990 kr..Current price is: 690 kr..
2.190 kr.
Original price was: 4.390 kr..Current price is: 2.499 kr..
4.290 kr.
4.090 kr.
2.990 kr. – 3.490 kr.
Original price was: 4.090 kr..Current price is: 2.499 kr..
2.990 kr. – 4.290 kr.
3.490 kr. – 4.990 kr.
Original price was: 4.590 kr..Current price is: 2.990 kr..
6.990 kr.
Original price was: 4.790 kr..Current price is: 4.290 kr..

INNskráning

Nýskráning