Himintungl yfir heimsins ystu brún

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 358 Original price was: 4.990 kr..Current price is: 2.499 kr..
spinner
Kilja 2025 358 4.290 kr.
spinner
Rafbók 2024 - 4.290 kr.
spinner

Himintungl yfir heimsins ystu brún

2.499 kr.4.290 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 358 Original price was: 4.990 kr..Current price is: 2.499 kr..
spinner
Kilja 2025 358 4.290 kr.
spinner
Rafbók 2024 - 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Árið 1615 skrifar presturinn Pétur um atburði sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi, um ástina, mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru. Á ystu rönd heimsins blása alþjóðlegir vindar og flytja með sér nýja heimsmynd, hugmyndir og bækur, enskar duggur, spánska hvalfangara og tilskipanir frá konunginum. Og penninn er beittari en sverðið.
Hvort er mikilvægara, að segja sannleikann eða vernda þá sem maður elskar? Árið er 1615, og veröldin er gengin úr lagi, því jörðin er ekki lengur miðdepill alheimsins. Presturinn Pétur á Meyjarhóli skrifar bréf – eða skýrslu, jafnvel ákæruskjal – til að henda reiður á atburðum sem hafa skekið sveitina á Brúnasandi og kippt stoðum undan tilveru hans og ástvina hans. Því stundum lítur Guð undan og leyfir mönnunum að breytast í djöfla, og hvað verður um þá sem þrjóskast við að segja sannleikann um það sem gerðist? Einkum ef þeir eru svo alræmdir fyrir syndugt líferni, óhlýðni og ósvífni gagnvart höfðingjum þessa lands, að þá hefur dagað uppi á hinum afskekkta Brúnasandi.
 

En þótt Brúnisandur sé á ystu rönd heimsins, þá blása þar alþjóðlegir vindar og flytja með sér nýja heimsmynd, hugmyndir og bækur, enskar duggur, spánska hvalfangara og tilskipanir frá konunginum í Kaupinhafn, sem ekki fara alltaf vel saman. Og hjörtu mannanna lúta engum lögum nema sínum eigin.

Himintungl yfir heimsins ystu brún er saga sem talar til samtímans aftan úr öldum, um ástina, mennskuna og ábyrgðina sem við berum hvert á öðru. Hún dregur upp ljóslifandi mynd af opinni, forvitinni og ástríðufullri öld, þar sem ný vísindi takast á við trúna, og penninn er beittari en sverðið.

Jón Kalman Stefánsson er fæddur árið 1963. Himintungl yfir heimsins ystu brún er hans fimmtánda skáldsaga. Fjarvera þín er myrkur (2020) hlaut virt frönsk verðlaun LePoint og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022. Jón Kalman hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Himintungl yfir heimsins ystu brún”

Tengdar bækur

Original price was: 4.290 kr..Current price is: 1.999 kr..
2.490 kr.5.190 kr.
ýmislegt um risafurur
1.499 kr.2.490 kr.
snarkið í stjörnunum
1.499 kr.2.490 kr.
Djöflarnir taka á sig náðir og vakna sem guðir
Original price was: 2.990 kr..Current price is: 1.999 kr..
Fjarvera þín er myrkur
1.499 kr.2.490 kr.
Thetta voru bestu ar aevi minnar
Original price was: 3.490 kr..Current price is: 1.999 kr..
Saga Ástu
999 kr.1.499 kr.
Eitthvað á stærð við alheiminn
990 kr.1.690 kr.
Original price was: 4.890 kr..Current price is: 1.990 kr..
4.390 kr.
2.999 kr.4.390 kr.
Original price was: 4.490 kr..Current price is: 2.980 kr..
Original price was: 3.190 kr..Current price is: 1.899 kr..
Original price was: 999 kr..Current price is: 990 kr..
1.490 kr.4.090 kr.
2.090 kr.
Original price was: 2.065 kr..Current price is: 490 kr..

INNskráning

Nýskráning