Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 224 |
|
||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884
990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 224 |
|
||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
„Því er ég annars að halda dagbók? Er það af því að ég búist við, að margt merkilegt drífi á dagana fyrir mér? Nei, fjarri fer því. Líf mitt er samt merkilegt fyrir mig … Ég ætla ekki að geta nákvæmlega um veðrið, en ég ætla að geta um veðurlagið í lífi mínu.“
Dagbækurnar sem Ólafur Davíðsson skrifaði þegar hann var um tvítugt eru einstök heimild um líf og hugsunarhátt kornungra menntamanna í Reykjavík og Kaupmannahöfn fyrr á tíð, merkilegur aldarspegill en um leið fágætur skemmtilestur þar sem fjölmörgum þekktum einstaklingum – skólastrákum, kennurum, betri borgurum og almenningi – eru gerð skil á kómískan og óvæginn hátt. Ólafur lýsir meðal annars svallveislum þar sem boðið var upp á bjór, koníak, vindla og vínarbrauð, segir kjaftasögur úr bæjarlífinu og fjallar afar opinskátt um eigin tilfinningar – ekki síst til ungs skólabróður síns.
Ólafur Davíðsson (1862–1903) var náttúrufræðingur og þjóðfræðingur og er þekktastur fyrir þjóðsagnasöfnun sína. Dagbækur hans frá skólaárunum voru gefnar út 1955 en þá töluvert ritskoðaðar.
Þorsteinn Vilhjálmsson fræðimaður og þýðandi annast þessa útgáfu og skrifar ítarlegan formála um Ólaf, dagbækurnar og tíðarandann.
Sýnishorn úr bókinni má sjá með því að smella á kápumynd hér til vinstri.
2 umsagnir um Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884
Arnar Tómas –
„Hressilegur aldarspegill.“
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið
Arnar Tómas –
„Loksins fá unnendur íslenskrar menningar óstytta útgáfu þessara einstæðu dagbóka í hendur. Að því er ómetanlegur fengur. Innileiki og hispursleysi – og þessi leikandi létti stíll. Þar standa fáir Ólafi á sporði.“
Þorvaldur Kristinsson