Jólabókaormurinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 72 4.490 kr.
✓
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2025 72 4.490 kr.
✓
spinner

Um bókina

Þið kannist við jólaköttinn en hafið þið heyrt um jólabókaorminn? Hann er nefnilega alveg jafnslæmur, nema hann étur bara þá sem fá ekki bók í jólagjöf!

Hafdís og Tómas þekkja söguna en hafa engar áhyggjur því í þorpinu gefa allir bækur. En hefur nokkur séð jólabókaorminn? Er hann til í alvörunni? Systkinin ákveða að skoða þetta nánar …

… en með því hætta þau á að vekja upp reiði jólabókaormsins …

Hvað gerist ef hann nær manni?

Hvað gerist ef hann étur mann?

Er sagan þá á enda … eða kannski bara rétt að byrja?

Gunnar Theodór (Steindýrin, Drauga-Dísa) og Yrsa Þöll (Bekkurinn minn) hafa getið sér gott orð fyrir ólíkar barnabækur. Þau eru líka hjón og eiga sjálf þrjú börn sem þau lesa mikið fyrir. Þetta er í fyrsta sinn sem þau skrifa bók saman enda er þeim annt um að enginn í þeirra fjölskyldu fari í jólabókaorminn!

Hafsteinn er sjálfstætt starfandi teiknari og hefur verið tilnefndur til fyrir verk sín til Barna- og ungmennabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Jólabókaormurinn”

Tengdar bækur

4.290 kr. – 4.690 kr.
2.090 kr.
2.690 kr.
4.390 kr.
4.090 kr.
1.790 kr.
6.290 kr.

INNskráning

Nýskráning