Kalmann
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 291 | 3.690 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 291 | 3.690 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 1.990 kr. |
Um bókina
Kalmann Óðinsson, sjálfskipaður lögreglustjóri á Raufarhöfn, gengur um með kúrekahatt og Mauserskammbyssu sem amerískur afi hans komst yfir í Kóreustríðinu og verkar næstbesta hákarl á landinu. Kalmann er sérstæður, einfaldur og klókur í senn, sér lífið í kringum sig öðrum augum en annað fólk og er í nánu sambandi við náttúru og umhverfi. En svo hverfur valdamesti maður þorpsins, sem hefur líf þess í hendi sér og virðist flæktur í vafasamt athæfi, Kalmann finnur stærðar blóðpoll við Heimskautsgerðið og allt fyllist af lögreglu og fjölmiðlamönnum sem spyrja óþægilegra spurninga.
Joachim B. Schmidt fæddist í Sviss 1981 en hefur búið á Íslandi frá 2007 og starfar sem leiðsögumaður og blaðamaður. Hann hefur áður sent frá sér þrjár skáldsögur. Kalmann hlaut frábæra dóma þegar sagan kom út í Sviss 2020 og komst á metsölulista Der Spiegel.
Bjarni Jónsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 57 mínútur að lengd. Hinrik Ólafsson les.
3 umsagnir um Kalmann
embla –
„Kærkomið viðbót við íslensku bókmenntaflóruna.“
Egill Helgason / Kiljan
embla –
„Þetta tekst ótrúlega vel.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
embla –
„Spennusagan er létt og skemmtileg, þó undirtónninn sé svartur og grimmur.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið