Kosningafræðarinn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2025 460 7.190 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2025 460 7.190 kr.
spinner

Um bókina

Kosningafræðarinn veitir heildaryfirlit yfir aðferðir við úthlutun sæta að loknum kosningum, svo sem í sveitarstjórnum eða á þjóðþingum en einnig í persónukjöri. Jafnframt er fjallað um ýmiss konar fyrirkomulag kjördæmaskipanar.

Í bókinni er farið yfir viðfangsefnið með skýringarmyndum, töflum og talnadæmum á þann hátt að auðskilið sé leikmönnum jafnt sem lærðum. Í kjölfarið er kafað dýpra og beitt stærðfræði, sem er þó fremur einföld. Undir lokin er bent á hvað geti orðið til bóta í ákvæðum um kosningar til Alþingis.

Höfundur megintextans, Þorkell Helgason stærðfræðingur, hefur verið ráðgjafi stjórnvalda um þennan málaflokk í meira en fjóra áratugi. Byggt er á fræðiritum, auk eigin rannsókna og útreikninga höfundarins.

Ritinu fylgir bókarauki eftir Jón Kristin Einarsson sagnfræðing þar sem rakin er þróun íslenskra kosningalaga allt frá endurreisn Alþingis til okkar daga.

Auk prentaðrar útgáfu fylgir aðgangur að vefútgáfu ritsins þar sem farið er ítarlegar í þá stærðfræði sem að baki liggur.

Kosningafræðarinn er lykilrit fyrir þá sem vilja ná sem fyllstum skilningi á grundvallarþætti lýðræðisins.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Kosningafræðarinn”

Tengdar bækur

4.090 kr.
1.090 kr.
5.190 kr.
6.990 kr.
3.690 kr.
2.090 kr.
990 kr.4.290 kr.
2.690 kr.5.490 kr.
4.490 kr.
2.990 kr.
3.790 kr.

INNskráning

Nýskráning