Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 538 13.490 kr.
spinner

Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi

13.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 538 13.490 kr.
spinner

Um bókina

Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skipulagsfræðanna og módernismans. Sjónum er einkum beint að mótun borgarskipulags í höfuðstað landsins en einnig að viðleitni ríkisvaldsins til að koma skipulagi á smærri bæi og þorp landsins.

Þetta er saga átaka og hugsjóna, saga hugmynda og nýrra strauma, en fyrst og fremst saga þjóðar á miklum umbrotatímum. Skipulag byggðar og mótun umhverfis eru eitt af mikilvægustu málefnum samtímans.

Sagan snertir á mörgum helstu álitamálum nútímasamfélaga, hvort sem litið er til húsnæðismála, samgöngumála, lýðsheilsumála eða umhverfismála. Þetta er yfirgripsmikið sagnfræðirit, með gagnrýnum undirtóni, sem byggir á áralangri rannsókn og víðtækri reynslu Haraldar af skipulagsmálum.

Bókina prýðir fjöldi mynda og uppdrátta og er hún mikill fengur fyrir alla þá fjölmörgu sem láta skipulagsmál og mótun umhverfis sig varða.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning