Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tími hnyttninnar er liðinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 60 | 2.090 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 60 | 2.090 kr. |
Um bókina
Í ljóðabókinni Tími hnyttninnar er liðinn er að finna erindi til okkar tíma, skilaboð sem eru í senn bjartsýn, ísmeygileg og fjörug – en algjörlega laus við hnyttni.
Ljóðunum er ætlað að faðma í stað þess að slá út af laginu, hugga í stað þess að espa og minna á það sem sameinar frekar en það sem sundrar. Með bókinni fylgir ennfremur upplestur á ljóðunum sem hægt er að hlaða niður ellegar hlusta á á netinu.
Handritið fékk Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs.
Ég er of þreyttur til að ganga um gólf
of eirðarlaus til að standa kyrr
í of miklu uppnámi til að sitja
af sömu ástæðu get ég ekki legið.
Tökum örstutta stund til að melta þetta.
Tengdar bækur
No data was found
2 umsagnir um Tími hnyttninnar er liðinn
Kristrun Hauksdottir –
„Bókin … hefur hugmyndaríkan titil sem gæti næstum því verið titill á lagi með Morrissey … Það vofir einhver einkennileg nostalgía yfir þessari bók, veruleikaflótti, draumurinn um afturhvarf til rökréttrar heimsmyndar, óorðuð andúð á afstæði og fjölhyggju samtímans.“
Hjalti Snær Ægisson / Víðsjá
Kristrun Hauksdottir –
„Þetta er einkar góð frumraun höfundar, stíllinn er sérstakur og persónulegur, ljóðin fremur í ætt prósa- og frásöguljóða en lýríkur. Enginn gleðibragur er á ljóðunum eins og vá sé yfir öllu í heimi þeirra, mörg kaldhæðin. Steinarsbraga-fílingur og þó, Bergs Ebba-fílingur. Bergur Ebbi á heima á skáldaþingi.“
Stefán Snævarr / eyjan.is