Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Virðing og umhyggja
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 537 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 537 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Fátt er mikilvægara en uppeldi og menntun æskufólks. Hér er athyglinni beint að því hlutverki uppalenda, einkum í skólastarfi, að rækta mikilvæg gildi í samskiptum fólks sem almenn samstaða ríkir um: virðingu og umhyggju, vináttu og kærleika, réttlæti og umburðarlyndi.
Umfjöllunin byggist á áralöngum rannsóknum höfundar á félagsþroska og samskiptahæfni barna og ungmenna og uppeldis- og menntunarsýn kennara. Hún hvílir á traustum fræðilegum grunni og jafnframt er framsetningin afar lipur og aðgengileg.
Viðfangsefnið snertir okkur öll, jafnt foreldra og aðra ættingja sem þær fagstéttir sem annast uppeldi og menntun barna og unglinga og hlúa að heilbrigði þeirra og farsæld.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.