Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Leyndardómur bláu lestarinnar
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 296 | 4.390 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 296 | 4.390 kr. |
Um bókina
Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu.
Í lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir.
Sögur fara á kreik um að ókunnugur maður hafi verið á sveimi í lestinni. Það er allt og sumt sem Poirot hefur að byggja á.
Smám saman kemur í ljós ótrúlegur vefur blekkinga og leyndarmála sem Poirot þarf að greiða úr til að afhjúpa morðingjann.
„Sérstaklega áhugaverð spennusaga í klassískum anda.“ New York Herald Tribune
„Agatha Christie er ódauðleg.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
Agatha Christie (1890–1976) er vinsælasti skáldsagnahöfundur allra tíma. Aðeins Biblían og verk Shakespeares hafa selst í fleiri eintökum á heimsvísu en bækur Agöthu Christie. Meira en milljarður eintaka hefur selst af bókum hennar á ensku og annar milljarður til í þýðingum á um eitt hundrað tungumál.





















Umsagnir
Engar umsagnir komnar