Barnabók. Hundrað og ein saga af Akureyri æsku minnar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 212 5.990 kr.
✓
spinner

Barnabók. Hundrað og ein saga af Akureyri æsku minnar

5.990 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2026 212 5.990 kr.
✓
spinner

Um bókina

Sigmundur Ernir er alinn upp á Syðri-Brekkunni á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma héldust fábreytni og nægjusemi í hendur og má segja að nýtni og sparsemi hafi verið höfuðdyggðir á heimilum alþýðufólks í bænum. Hér safnar skáldið góðkunna saman munnmælasögum sem eru í senn forkostulegar og gamansamar heimildir um horfinn tíma.

Eftir seinna heimsstríð fjölgaði Akureyringum ört og fyrstu hverfi bæjarins tóku á sig mynd. Á meðan Innbærinn kúrði undir kambi og Oddeyrin þétti raðirnar, flengdist Brekkan upp í hlíð og Þorpið blés í norður. Þar að baki stóð alþýðufólk sem reisti hús sín á mörgum árum, hurð fyrir hurð, á tímum hafta og óðaverðbólgu, svo ekki voru efni á gólfteppi fyrr en seint og um síðir, ef rétti bankastjórinn var á vakt. Annars var þetta vinna hjá Verksmiðjunum og ÚA, en Sjallinn um helgar. Nýja Akureyri er svo miklu fjölbreyttari en sú gamla má ekki gleymast.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Barnabók. Hundrað og ein saga af Akureyri æsku minnar”

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning