Blöndukúturinn: frásagnir af eftirminnilegum atburðum og skemmtilegu fólki

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2018 App 990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Blöndukúturinn: frásagnir af eftirminnilegum atburðum og skemmtilegu fólki

990 kr.

Blöndukúturinn: frásagnir af eftirminnilegum atburðum og skemmtilegu fólki
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók - streymi 2018 App 990 kr. Setja í körfu
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Um bókina

Þessi bók hefur að geyma frásagnir af eftirminnilegum atburðum og skemmtilegu fólki sem tengist Akranesi og Borgarfirði. Brugðið er upp myndum af lífi fólks í leik og starfi. Lýst átökum þess við óblíða náttúru og harðsnúin yfirvöld.

Sagt er frá fyrstu áætlunarferðum á Faxaflóa. Birt er frásögn af störfum sjómannskonu á Akranesi og frásagnir af frækilegum björgunarafrekum í Faxaflóa og á Borgarfirði. Sagt er frá dvöl Hjalta Björnssonar í Danmörku og Þýskalandi á stríðsárunum, heimferð með þýskum kafbáti og síðan fangavist í Bretlandi. Þáttur af Pétri Hoffmann og síðustu sjóferð hans. Þá eru minningar og sagnir frá náttúruperlunum Akrafjalli og Elínarhöfða. Þáttur um Báruhúsið, gamanvísna- og revíuhöfundinn Theódór Einarsson, skemmtikraftana og EF-kvintettinn. Þættirnir í bókinni voru fluttir í Ríkisútvarpinu haustið 1997 undir heitinu „Blöndukúturinn“. Vegna óska fjölmargra hlustenda var ákveðið að birta þá í bókarformi og nú í hljóðbókaformi. Heiti þáttanna gefa hugmynd um fjölbreytt efni bókarinnar:

– Fylgt úr hlaði
– Íslendingur undir hæl nasista
– Störf sjómannskonunnar og frækileg björgun í Faxaflóa
– Hoffmannshús og örlög Péturs Hoffmanns
– Stórhuga bjartsýnismaður í Borgarfirði og örlög hans
– Lífið á skútunum og lokaferð Hafmeyjunnar
– Notkun hverahitans og fyrstu rafljósin í Borgarfirði
– Giftusamleg björgun á Borgarfirði
– Hrakningar í beitufjöru og síðasti fátækraflutningur á Akranesi
– Náttúruperlan Akrafjall
– Elínarhöfði
– „Í Báruhúsi hér ég brosandi fer“

Höfundur bókarinnar, Bragi Þórðarson útgefandi, hefur áður sent frá sér bókaflokkana Borgfirsk blanda I-VIII, Sagnir og fróðleikur úr Mýra- og Borgarfjarðarsýslum, og Lífsreynsla I-III, frásagnir af eftirminnilegri og sérstæðri reynslu.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er um 7 klukkustundir að lengd. Höfundur les.

Tengdar bækur

Sæmundarsaga rútubílstjóra
990 kr.5.005 kr.
Baráttufólk
510 kr.990 kr.
990 kr.1.695 kr.
Skagamenn - í gamni og alvöru
1.990 kr.2.990 kr.

INNskráning

Nýskráning