Snorri á Fossum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 1.695 kr.
spinner
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Snorri á Fossum

990 kr.1.695 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2013 1.695 kr.
spinner
Rafbók 2019 990 kr.
spinner

Um bókina

Snorri á Fossum er að góðu kunnur. Borgfirðingar þekkja hann sem dugandi bónda, hestamann, gleðimann og leikara, en á undanförnum árum hefur hann orðið lands­þekktur söngvari og „hjálpari“. Með því er átt við hæfileika Snorra til að koma öðrum til aðstoðar með ýmsum hætti. Hann getur fundið vatn í jörðu með spáteinum, hann sér óorðna hluti og veitir hjálp í veikindum og annars konar erfiðleikum með stuðningi frá öðrum heimi.

Snorri Hjálmarsson er upprunninn í Aðalvík á Hornströndum en fluttist í Andakílinn eftir upp vöxt og skólagöngu í Reykjavík og á Hvanneyri. Hann hreppti kóngsdótturina, Sigríði Guðjónsdóttur á Syðstu­Fossum, hálft ríkið og síðan allt, eins og í sönnu ævintýri, og hefur ríkt þar síðan.

Hinn góðkunni sagnamaður, Bragi Þórðarson, segir í þessari bók sögu Snorra sem er allt í senn – fróðleg, umhugsunarverð og bráðskemmtileg. Hér eru á ferðinni æviminningar manns með einstaka hæfileika og jákvæða lífssýn, manns sem gefur lífinu lit og er ávallt reiðubúinn að rétta náunganum hjálparhönd.

INNskráning

Nýskráning