Haustsöngvar
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 63 | 4.490 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kilja | 2026 | 63 | 4.490 kr. |
Um bókina
Eitt af höfuðskáldum Frakka á sinni tíð, dáður en umdeildur og átti í stormasömu sambandi við landa sinn, ljóðskáldið Arthur Rimbaud, sem leiddi til örlagaríkra atburða. Hér birtist í fyrsta sinn á íslensku úrval háttbundinna ljóða sem veita ágæta innsýn í skáldskap Verlaines auk fróðlegs og hnitmiðaðs eftirmála þýðandans.
Paul Verlaine (1844-1896) var eitt fremsta ljóðskáld Frakka á síðari hluta 19. aldar og einn upphafsmanna symbólismans og módernismans þar í landi þótt kveðskapur hans sé að mestu rígbundinn og rímaður. Hann var trúaður, en bara þegar það hentaði, auk þess að vera drykkfelldur og lifa á margan hátt óvenjulegu lífi. Frægt varð með eindæmum ástar- og vináttusamband hans við skáldið Arthur Rimbaud, en það endaði með ósköpum og sat Verlaine í fangelsi um tíma af þeim sökum. Eftir því sem næst verður komist hafa aðeins 4 kvæði eftir Verlaine verið þýdd íslensku og það fyrir lifandis löngu, en eitt þeirra reyndar í þrígang svo þýðingarnar eru sex talsins. Haustsöngvar eru því kærkomin viðbót og sannarlega tímabært útgáfa.












Umsagnir
Engar umsagnir komnar