Kapítóla
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 552 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2018 | Mp3 | 2.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 2.780 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 552 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. | |||
Geisladiskur | 2018 | Mp3 | 2.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 2.780 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Skapstyggi karlfauskurinn Ira Warfield – Fellibylur – fer að leita að horfnu stúlkubarni sem er erfingi mikilla auðæfa – og finnur frakka og klára götustelpu í New York.
Hann tekur hana með sér heim í Fellibyljahöll og reynir að ala hana upp sem hefðardömu – með æði misjöfnum árangri. En kjarkmikli fjörkálfurinn Kapítóla heillar alla upp úr skónum, hvort sem það er þjónustufólkið, lögregluyfirvöld, yngismaðurinn Herbert Grayson eða ræningjaforinginn ógurlegi, sjálfur svarti Donald …
E.D.E.N. Southworth (1819–1899) var vinsælasti skáldsagnahöfundur Ameríku á sínum tíma og skrifaði yfir sextíu sögur, margar um sjálfstæðar og uppreisnargjarnar stúlkur. Kapitola, eða Upp koma svik um síðir kom fyrst út 1859 og naut frá upphafi gífurlegra vinsælda. Íslendingar kynntust Kapítólu fyrst sem framhaldssögu í Heimskringlu 1896–1897 í þýðingu Eggerts Jóhannssonar og síðan hefur hún komið út mörgum sinnum hér á landi.
Silja Aðalsteinsdóttir sá um þessa útgáfu og ritaði eftirmála.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 41 mínútur að lengd. Þórunn Hjartardóttir les.
4 umsagnir um Kapítóla
Eldar –
„Kapítóla [er] heillandi og skemmtilegt ævintýri þar sem er farið á ystu brúnir í baráttu góðs og ills.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Fréttablaðið
Eldar –
„Þetta er gríðarlega spennandi saga um örlög saklausrar og góðrar stúlku í hörðum heimi (…) Hér á landi varð
Kapítóla innblástur og fyrirmynd þriggja kynslóða kvenna sem lærðu af henni sjálfstæði, hvatvísi, hugrekki og staðfestu.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Elín Pálsdóttir –
„… framúrskarandi spennandi saga.“
Templar
Elín Pálsdóttir –
„Kapítóla Black er ábyrg fyrir strákastelpunni í bandarísku þjóðlífi … þessi djarfa kvenhetja sem notar götumál, blæs á feðraveldið og klæðir sig jafnvel í strákaföt gerði strákastelpuna að þjóðþekktu fyrirbæri og hafði víðtæk áhrif.“
Prófessor Michele Ann Abate