Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Postulín
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2025 | 63 | 4.890 kr. |
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2025 | 63 | 4.890 kr. |
Um bókina
Postulín er áhrifamikil ljóðabók um hamfarir, bæði þær sem ryðjast fram af slíku offorsi að þær setja mark sitt á allt samfélagið og þær persónulegu sem fæstir heyra nokkurn tímann af.
Postulín er önnur ljóðabók Sunnu Dísar Másdóttur en sú fyrri, Plómur, kom út árið 2022 og var tilnefnd til Maístjörnunnar. Ári síðar hlaut Sunna Ljóðstaf Jóns úr Vör. Fyrsta skáldaga hennar, Kul, kom út 2024. Ásamt höfundakollektífinu Svikaskáldum hefur Sunna gefið út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
















3 umsagnir um Postulín
Fanney Benjaminsdottir –
„Ljóðabókin Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur er jafn fallega brothætt og titillinn gefur til kynna. Sögusvið bókarinnar er safn í smábæ þar sem fjallið vakir yfir íbúum og draugar fortíðar eru alltumlykjandi. Kona og fjall renna að lokum saman í eitt þegar dregin er upp mynd af snjóflóði samhliða því þegar ljóðmælandi upplifir fósturmissi. Undurfagur texti um sorg, missi og grimmd dauðans sem lætur í ljós einstaka næmni höfundar.”
Úr umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna
Fanney Benjaminsdottir –
„Bókin er áhrifamikil og eiginlega hrollvekjandi á köflum, ekki síst þar sem ógnin snertir það allra viðkvæmasta og dýrmætasta. Heimilið, þar sem manni á að finnast maður hvað öruggastur, eða sinn eigin líkama. Þetta eru virkilega vönduð skrif um viðkvæm málefni sem þarf þó líka að tala um.”
Gréta Sigríður Einarsdóttir / Víðsjá
Fanney Benjaminsdottir –
„Ljóðabókin Postulín er falleg á allan hátt. Bæði kápan og uppsetningin er mínímalísk en um leið sterk, engri línu er ofaukið, eða litbrigðum, letrið fellur að umhverfi kápunnar eins og steinar landslagi. Þá eru ljóðin sjálf úthugsuð og hvert orð er á réttum stað og stendur sterkt og fullkomið … Sunna Dís á mikið hrós skilið fyrir vel unnið verk og tekur sér verðskuldaða stöðu í fremstu röð íslenskra skálda með þessu fallega listaverki.”
Sjöfn Asare / Lestrarklefinn