Saumaklúbburinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 243 | 5.590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 243 | 5.590 kr. |
Um bókina
Bókin Saumaklúbburinn hefur að geyma yfir 140 uppskriftir fyrir hin ýmsu tilefni. Nafnið er tilkomið því oft er talað um að halda saumaklúbb þegar fólk hittist til þess að spjalla saman og snæða góðar veitingar. Í þessari bók er að finna uppskriftir sem henta bæði slíkum tilefnum sem og hversdagslegri matargerð.
Uppskriftirnar spanna allt frá salötum yfir í ostagóðgæti, aðalrétti, smárétti, kökur og kræsingar og koma úr ýmsum áttum. Þær eiga það sameiginlegt að vera allar fremur einfaldar um leið og þær eru afar fjölbreyttar. Auk hefðbundinna uppskrifta eru settir fram saumaklúbbar hjá tíu frábærum konum sem bjóða upp á fjölbreyttar uppskriftir og mismunandi framsetningarmöguleika.
Berglind Hreiðarsdóttir hefur um árabil haldið úti heimasíðunni www.gotteri.is þar sem finna má uppskriftir, veisluhugmyndir, umfjöllun um matarupplifanir og ævintýri. Þá hefur hún einnig haldið fjölmörg kökuskreytinganámskeið fyrir landsmenn.
Saumaklúbburinn er því hafsjór hugmynda þegar kemur að heimboðum og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.