Augu stara á hjarta

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 104 3.390 kr.
spinner

Augu stara á hjarta

3.390 kr.

Augu stara á hjarta
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 104 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Gegnum augu mín horfa önnur augu. Þau stara á þennan huga, þetta hjarta. Þessi orð. Svo segir í fyrsta kvæði þessarar bókar. Ljóðin eru sjálfsskoðun og sjálfstjáning. Þó eru augun sem horfa á hug og hjarta „önnur augu“. Slík klofning sjálfsins er kjarni og vandi ljóðlistarinnar: hvernig getur sá sem er hluti af heiminum ort um heiminn, sjálfur um sjálfan sig?

Hnitmiðuð ljóð Stefáns Snævarr eru í senn ljóðræn og tilvistarleg, huglæg og hlutlæg. Skáldið horfir á þjáninguna og lífsnautnina, hlutgerir tilfinningar í orðum sínum, en hver eru áhrif áhorfsins? „Skáldgyðjan og viskugyðjan kveðast á í ritverkum mínum,“ segir Stefán í ritgerð sem hér fylgir ljóðunum þar sem hann gefur stutt yfirlit yfir skáldrit sín og tengsl þeirra við heimspekileg viðhorf sem hann hefur mótað og sett fram í fjölda rita.

Tengdar bækur

6.390 kr.
Bókasafnið
5.990 kr.
Kredda í kreppu
4.345 kr.
1.225 kr.

INNskráning

Nýskráning