Það er myrkt og drungalegt haustkvöld í miðbæ Reykjavíkur þegar undarlegur maður ryðst inn á heimili Steins Steinarrs, leynispæjara. Maðurinn er farþegi á skemmtiferðaskipinu Heiminum sem liggur við festar í Reykjavíkurhöfn og tjáir spæjaranum og aðstoðarmanni hans, Muggi Maístjörnu, að skelfilegir atburðir séu yfirvofandi um borð í Heiminum og æskir liðsinnis þeirra. Í kjölfarið sigla þeir félagar áleiðis til New York og dragast inn í þéttriðið net morða, blekkinga og kúgunar. Hvert er leyndarmál Hvítu Nellikunnar? Eða Jane Evans, sorgmæddu stúlkunnar með hvolpa-augun. Hvað sá hún? Og hver fær hana til að opna sig!? Og síðast en ekki síst: Leynispæjarinn Steinn Steinarr, spæjarinn með hattinn og stækkunarglerið, sem ekkert er óviðkomandi, alltaf snuðrandi. Kemst hann í klandur? Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins er óður til gömlu glæpasögunnar, og stórfenglegt listaverk skrifað af nær glæpsamlegu innsæi í mannlegt eðli.