Líf í bókum: íslenskar bókmenntir í þúsund ár
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 584 | 10.790 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 6.990 kr. |
Líf í bókum: íslenskar bókmenntir í þúsund ár
6.990 kr. – 10.790 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
| Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
|---|---|---|---|---|---|
| Mjúk spjöld | 2026 | 584 | 10.790 kr. | ||
| Rafbók | 2026 | - | 6.990 kr. |
Um bókina
Heildarsaga íslenskra bókmennta frá upphafi til okkar daga þar sem þúsund ára ævintýraleg atburðarás er fjörlega rakin af Halldóri Guðmundssyni bókmenntafræðingi og rithöfundi. Um leið og hann gerir grein fyrir meginþráðum í bókmenntasögu okkar, straumum og stefnum, fjölmörgum höfundum og verkum, allt frá fornritum til nýrra innflytjendabókmennta, leggur hann persónulegt mat á mörg verkanna og bregður upp svipmyndum af skáldum og starfi útgefandans en Halldór var bókaútgefandi í tæpa tvo áratugi og býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á íslenskum bókmenntum, bókaútgáfu og bókamarkaði.
Íslensk bókmenntasaga býr yfir einstöku ríkidæmi en líka fjölmörgum gátum. Á seinni hluta miðalda skrifuðu Íslendingar slíkan fjölda frásagna á móðurmáli sínu að það á sér enga hliðstæðu í lausamálsbókmenntum Evrópu. Um leið sköpuðu þeir menningararf sem niðjar þeirra gátu stuðst við í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar mörgum öldum síðar. En þótt gullöld sagnaritunar liði hjá og landsmenn þyrftu að glíma við hallæri og hörmungar héldu þeir alla tíð áfram að semja og yrkja, skrifa og lesa, og enn eru bókmenntir, bækur og bóklestur ríkur þáttur í sjálfsmynd þjóðarinnar. Hvers vegna urðum við eiginlega þessi bókaþjóð?




















Umsagnir
Engar umsagnir komnar