Piltur og stúlka

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 308 4.990 kr.
spinner

Piltur og stúlka

4.990 kr.

Piltur og stúlka
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2017 308 4.990 kr.
spinner

Um bókina

Jón Thoroddsen stóð á þrítugu þegar hann hóf að skrifa skáldsöguna Pilt og stúlku, sem markar upphaf nútíma skáldsagnagerðar Íslendinga.

Hann var innblásinn af bókmenntum samtímans í Danmörku og Vestur-Evrópu, án þess þó að herma eftir neinum. Úr varð gamansöm örlagasaga Sigríðar Bjarnadóttur og Indriða Jónssonar, sem eftir misskilning á misskilning ofan fá loks að eigast.

Söguþráðurinn er látlaus en samtöl afburða fyndin og ýmsar persónur óborganlegar, einkum Gróa á Leiti og Bárður á Búrfelli. Skáldsagan kom fyrst út í Kaupmannahöfn vorið 1850 og næst í Reykjavík sumarið 1867, endurskoðuð og aukin af höfundi. Við þá útgáfu hafa allar síðari prentanir stuðst og hafa því fáir lesið söguna í upprunalegri mynd.

En í tilefni af því að liðin eru 200 ár frá fæðingu Jóns og 150 ár frá andláti hans, er fyrsta útgáfan hér endurprentuð og lesendur njóta texta sem er tær afurð ungs rithöfundar sem vildi gera eitthvað nýtt og spennandi, og tókst það.

Umsjón með þessari útgáfu hafði Már Jónsson, sonardótturdóttursonur höfundar, sem einnig skrifar ítarlegan inngang.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning