Barnaræninginn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 224 |
|
||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 224 |
|
||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Eftir hallarbyltinguna í Hafnarlandi ríkir friður og ró. En brátt logar allt í ófriði og Barnaræninginn er aftur farinn að ræna börnum. Nú eru það börnin á Matarfjallinu sem lenda í klónum á honum. Eyrdís verður að gera eitthvað í málunum því að ástandið er henni að kenna. Hún verður að stoppa Barnaræningjann þó að það gæti orðið hennar bani!
Barnaræninginn er fyndin og æsispennandi, rétt eins og Draumaþjófurinn, fyrri bókin um rotturnar í Hafnarlandi sem naut mikilla vinsælda og var tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.
Gunnar Helgason hefur sent frá sér fjölda gríðarvinsælla barnabóka. Fyrir Mömmu klikk! hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókaverðlaun barnanna hafa sex sinnum fallið honum í skaut.
Myndir gerir Linda Ólafsdóttir sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir myndlýsingar sínar, hér heima og erlendis.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 20 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:
2 umsagnir um Barnaræninginn
embla –
„[…] þá er söguþráðurinn í Barnaræningjanum upp á tíu. Hvert einasta atriði hans er úthugsað og bókin heldur lesandanum rækilega við efnið.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Barnaræninginn er athyglisverð og skemmtileg bók, sem einkennist eins og fyrri verk Gunnars Helgasonar af mikilli frásagnargleði. Hér tekst að vekja áhuga á og skapa samkennd með dýrum sem flestum stendur stuggur af, án þess að gera þær væmnar eða klisjukenndar. Sagan er auk þess áhugaverð speglun á samfélagi mannanna, þar sem er skoðað hvernig samfélög virka í ólíkum kringumstæðum og hvernig gjörðir hafa afleiðingar.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntaborgin