Fótspor á himnum

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1997 216 990 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner
Kilja 1999 216 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2005 Mp3 2.190 kr.

Fótspor á himnum

990 kr.2.190 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1997 216 990 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner
Kilja 1999 216 990 kr.
spinner
Geisladiskur 2005 Mp3 2.190 kr.

Um bókina

Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áður.

Þannig kveður Olli Spánarfari Unni fögru áður en hann heldur af stað í borgarstyrjöldina á Spáni ásamt vini sínum, risanum Ragnari.

Fjölskylda Ragnars er í forgrunni þessar mögnuðu sögu um líf og örlög Íslendinga sem vaxa úr grasi á fyrstu áratugum aldarinnar. Hér er lýst fjölda minnistæðra og litríkra persóna; Haraldi tómthúsmanni, afa Ragnars, foreldrum hans Óla ragara og Guðnýju sem gerist dyggur liðsmaður Hvítasunnusafnaðarins, stórum systkinahópi og lagsbræðrum Ragnars í kommúnisma og Grími boxara.

Þetta er saga stoltra einstaklinga sem verður um leið þjóðarsaga. Einar már hefur sjaldgæf tök á efni sínu, byggir á heimildum og hugarflugi, sameinar raunsæja þjóðlífslýsingu og ljóðrænar stemningar og kryddar með snjöllum tilsvörum og góðum húmor.

Sagan Fótspor á himnum hlaut frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda þegar hún kom út árið 1997 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þetta er fyrsta skáldsaga Einars Más eftir Engla alheimsins sem færði höfundi sínum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hefur síðan farið sigurför um heiminn.

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

INNskráning

Nýskráning