Spegilsónata

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1998 990 kr.
spinner

Spegilsónata

990 kr.

Spegilsónata
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 1998 990 kr.
spinner

Um bókina

Spegilsónata eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur er áleitin og erótísk saga um það sem alltaf er en aldrei verður: Ævaforn lögmál sem hefðin horfir fram hjá, ástina sem neitar að deyja, syndina sem byltist í fylgsnum, fórnina sem skiptir sköpum.

Þetta er sagan um það sem býr á bak við spegilmyndina. Með einstæðum tökum á frásagnarhætti og stíl fjallar höfundur um miskunnarlausar en um leið ómótstæðilegar mótsagnir í lífi aðalpersónanna og glímu þeirra við gömul örlög. Hann segir sögu karls og konu sem leiðast um lífið á laun eins og tré sem flétta rætur djúpt í mold, söguna sem allir þekkja en enginn sér.

Þetta er fjórða skáldsaga höfundar og sú fyrsta fyrir fullorðna en Þórey hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Eplasnepla árið 1995.

Tengdar bækur

No data was found

INNskráning

Nýskráning