Sítrónur og náttmyrkur

Útgefandi: Svikaskáld
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 59 2.890 kr.
spinner

Sítrónur og náttmyrkur

Útgefandi : Svikaskáld

2.890 kr.

Sítrónur og náttmyrkur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 59 2.890 kr.
spinner

Um bókina

Sítrónur og náttmyrkur er næm og seiðmögnuð ljóðabók um umskipti og áttun. Hér brýst fram einstök höfundarrödd sem leiðir lesandann í gegnum öldurót og norðanhríð, ljóssprengingar og náttmyrkur, ugg, vá og kærleik.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona. Hún hefur samið og unnið að leiksýningum, gjörningum og innsetningum hérlendis og erlendis um árabil. Ritverk hennar og ljóð hafa birst í ýmsum útgáfum og heyrst í útvarpi.

Sítrónur og náttmyrkur er hennar fyrsta ljóðabók.

Rödd

Í risi fyrir ofan kirkjugarð dreymir mig
sítrónu í lófa mínum

hún hafði setið föst í hálsinum alla tíð
án þess að ég vissi af henni

nýja röddin kemur mér á óvart
hún er vínrautt flauel

óþekkjanleg

í hvert sinn sem ég kyngi
finn ég hita þar sem hún var áður

Tengdar bækur

Opnunartímar á Fiskislóð

Virka daga 10-18
Laugardaga 11-17
Sunnudaga 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning