Heilræði lásasmiðsins
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2007 |
|
|||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2022 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2007 |
|
|||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Heilræði lásasmiðsins eftir Elísabetu Jökulsdóttur er einlæg, bersögul og nærgöngul frásögn af sambandi tveggja ólíkra einstaklinga sem mætast og ná saman um stund en hljóta svo að skilja. Sagan er rituð af stílsnilld og frásagnargleði – og brennandi ást.
„Svo elskuðumst við í garðinum. Einu sinni og aftur. Það var einsog galdrabæn.“
Elísabet og Algea kynntust þegar hún var á ferðalagi í New York. Hann bandarískur, hún íslensk; hann svartur, hún hvít; hann hattagerðarmaður og trommuleikari, hún skáld; hann stórborgarbúi, hún náttúrubarn. Þau eru ástfangin og eiga saman unaðsstundir; hann fylgir henni til Íslands og þau reyna að búa saman en bæði eiga erfitt með að skilja á milli ímyndunar og veruleika og það er margt sem truflar.
Ekki síst það að ástin opnar aðgang að afkimum sálarlífsins sem lengi hafa verið harðlæstir – og lásasmiðurinn þarf að láta til sín taka.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 53 mínútur að lengd. Margrét Örnólfsdóttir les.
11 umsagnir um Heilræði lásasmiðsins
Elín Pálsdóttir –
„Höfundurinn segir sögu sína á berorðan og óvæginn hátt, með blöndu af húmor og sársauka … Tilfinningar einmanaleikans eru líklega það sem sameinar þetta ólíka fólk … Þetta er bráðskemmtileg frásögn á köflum þó að hún fjalli um grafalvarleg efni á borð við flótta, auðsveipni, andlegt ofbeldi og þessa undarlegu merkimiða sem við hengjum utan á annað fólk … Persónuleg bók ásta og áráttu.“
Kristrún Heiða Hauksdóttir / Fréttablaðið
Elín Pálsdóttir –
„… ekki saga um ást eða fallegt samband heldur sárlarlífið á bak við atburðarásina. Hinn innri faldi veruleiki verður ljóslifandi á hverri blaðsíðu … Höfundur leggur upp í sjálfskoðun af sjaldséðri einlægni og átakanlegri ástríðu … Dásamleg ástarsaga dóttur til föður sem aldrei var til staðar í lifandi lífi en samt eru þau órjúfanleg heild, tilfinningarnar svo stórbrotnar að orðin eru máttlaus verkfæri en í staðinn er það andinn sem svífur yfir þessari bók sem gefur þér visku til að skilja meira. … Ekki bókstafir einir en líf, þú finnur lífið kvikna í lestri þessarar bókar sem snertir við öllum og öllu því hún hefur að geyma það sem við hugsum en ekki segjum.“
Áslaug Einarsdóttir / Morgunblaðið
Elín Pálsdóttir –
„Einstök bók, hugrökk, falleg.“
Ásdís Ólsen, sjónvarpskona
Elín Pálsdóttir –
„Ég segi bravó fyrir þessum skrifum, sleppti henni ekki eina sekúndu. Hef ekki í annan tíma lesið bók þarsem er skrifað um kynlíf á svo teprulausan hátt.“
Júlía Alexandra, blaðamaður
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er þröskuldabrjótur, stórmerkileg bók, löngu eftir að við verðum farin þá á hún eftir að grípa inní. Þetta er klappað í stein.“
Bubbi
Elín Pálsdóttir –
„Forvitnileg.“
Egill Helgason, sjónvarpsmaður
Elín Pálsdóttir –
„Goðsagnakennd.“
Ásgeir H. Ingólfsson, blaðamaður
Elín Pálsdóttir –
„Öllum landamæravörðum var gefið frí þegar þessi bók var skrifuð.“
Kristín Bjarnadóttir, skáld
Elín Pálsdóttir –
„Hver segir að bækur eigi að vera þægilegar?“
Kolbrá Höskuldsdóttir bókmenntafræðingur
Elín Pálsdóttir –
„Það eru nokkrir dagar síðan ég lauk við að lesa þessa bók og ég hef verið að melta hana síðan. Bókin er í senn falleg og óvægin. Hún er bæði erfið og náin. Lesandinn ferðast með höfundi um hugarheima hennar, allt að innstu hjartarótum. Það var ekki auðvelt ferðalag, hvorki fyrir Elísabetu né mig. Heilræði lásasmiðsins er sönn saga í bestu merkingu þess orðs, saga sem snertir lesandann og hreyfir við. Saga um ást, saga um þrá, saga um mannleg samskipti og saga um örlög.“
Runolfur.is
Elín Pálsdóttir –
„Kjörkuð, nærandi krufning á því hvað er að vera manneskja. Skemmti mér við að lesa bókina, hún er mjög góð.“
Vilborg Halldórsdóttir leikkona